málvísindi
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: A.m.k. 10 einingar í íslensku á 2. þrepi
Í áfanganum verður fjallað um málvísindi í tengslum við viðfangsefni félagsvísindabrautar. Nemendur kynnast máltöku barna sem er hluti af sálfræðinámi þeirra, hljóðfræði sem færir þá inn í framburðarathuganir , þróun móðurmálsins eftir tímabilum sem tengir þá við Íslandssöguna, mállýskur (félagslegar, landshlutabundnar eða aldurstengdar) sem gefur þeim skilning á mismunandi félagslegum aðstæðum manna og tjáskipti til að skilja og skynja þær margvíslegu aðferðir sem menn hafa til að koma ætlun sinni til skila.
Þekkingarviðmið
- málvísindum á félagsfræðilegum grunni
- máltöku barna
- málbreytingum frá einum tíma til annars
- hljóðfræði og hljóðritun
- mállýskum (félagslegum, landshlutabundnum og aldurstengdum)
- tjáskiptum
Leikniviðmið
- þekkja almenn tjáskipti með og án orða
- sjá aldursmun texta eftir málfari
- sjá mun á aldri, búsetu og stétt manna eftir málfari
- hljóðrita algeng orð og lesa úr hljóðritun
- meta málstig barna
- greina málvísindi á félagsfræðilegum grunni
Hæfnisviðmið
- beita málvísindum á félagsfræðilegum grunni
- fylgjast með börnum og málþroska þeirra og gera grein fyrir niðurstöðum athugana sinna skriflega og í myndrænu og töluðu formi
- nota kunnáttu sína í hljóðfræði og hljóðritun til að lýsa framburði orða og þekkja mun á mállýskum
- gera sér grein fyrir aldri, búsetu eða stétt manna eftir málfarseinkennum þeirra og geta tekið þátt í rökræðum þar að lútandi
- gera sér grein fyrir aldri texta frá mismunandi tímabilum og fjalla um breytingar sem orðið hafa
- gera sér grein fyrir mismunandi tjáningarhætti manna með látbragði, orðum og svipbrigðum, skilja hvað í þessu felst og geta tekið þátt í umræðu um þessi efni
Nánari upplýsingar á námskrá.is