þroskasálfræði
Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SÁLF2HS05
Þá er helst lögð áhersla á líkamsþroska, vitsmunaþroska, og félags-og tilfinningaþroska og efnið tengt lífi nemenda og samfélagi. Nemendur skulu fá þjálfun í aðferðum við rannsóknir, skrifum rannsóknarskýrslna og almennri heimildavinnu bæði á íslensku og ensku. Viðfangefni er þroski frá getnaði til unglingsára. Einnig má fara í þroskaviðfangsefni frá unglingsárum til öldrunar og taka fyrir álitamál eftir áhuga nemenda
Þekkingarviðmið
- helstu þroskasviðum mannsins s.s. líkamsþroska, vitsmunaþroska, félags- og tilfinningaþroska
- kenningum er varða þroska ásamt hugtökum sem þeim tengjast
- viðfangsefnum, rannsóknaraðferðum og helstu álitamálum þroskasálfræðinnar í samfélaginu
- áhrifum mismunandi umhverfisáhrifa á þroska barna
Leikniviðmið
- lesa sálfræðitexta bæði á íslensku og ensku
- bera saman kenningar
- beita helstu hugtökum þroskasálfræðinnar í ræðu og riti og tengja þekkingu sína við samfélagið
Hæfnisviðmið
- tjá sig skipulega í ræðu og riti og taka þátt í umræðum um þroskasálfræði
- geta nýtt sér bæði íslenskar og erlendar heimildir og notað þær á réttan hátt
- ástunda viðurkennd vinnubrögð og taka ábyrgð á vinnu sinni
- meta rannsóknarniðurstöður og trúverðugleika heimilda
Nánari upplýsingar á námskrá.is